Reglur

Hvernig stigin verða til

Stig eru reiknuð fyrir hvern leikmann í hverjum leik og lögð saman fyrir byrjunarliðið þitt. Varamenn gefa engin stig. Fyrirliðinn fær 2-föld stig.

Stigagjöf

AtriðiStigUppspretta
Mark+1HSÍ
Stoðsending+1Harpix
Skapað færi+1Harpix
Stolinn bolti+2Harpix
Fiskað víti+1Harpix
Varið skot+1Harpix
Varið víti+3Harpix
Tapaður bolti-1Harpix
2 mínútur-2HSÍ
Gult spjald-1HSÍ
Rautt spjald-3HSÍ

Mótakerfi HSÍ skilar aðeins mörkum, tveggja mínútna brottvísunum, áminningum og brottrekstri. Vörslur, stoðsendingar og hitt er skráð af Harpix eftir hvern leik.

Bónusar

8+ mörk og stoðsendingar í leik+2
12+ vörslur í leik+2
40% markvarsla, að lágmarki 10 skot+3

Bónusarnir eiga við alla, ekki bara markverði. Markvörður sem skorar eða leggur upp fær sömu stig og útileikmaður fyrir það.

Liðsskipan

Hópur12 leikmenn
Byrjunarlið7
Bekkur5
Markvörður í byrjunarliði1
Hornamaður í byrjunarliði2
Skytta í byrjunarliði2
Miðjumaður í byrjunarliði1
Línumaður í byrjunarliði1
Hámark frá sama félagi3
Fjárhagsrammi80m kr.

Læsing og uppgjör

Liðið er opið þangað til fyrsti leikur umferðarinnar hefst. Á því augnabliki er byrjunarliðið og fyrirliðavalið fryst, og seinni breytingar gilda fyrir næstu umferð. Stig umferðarinnar eru reiknuð þegar HSÍ hefur staðfest leikskýrslurnar. Leiðrétti HSÍ skýrslu eftir á er umferðin reiknuð aftur.