Skilmálar

Þátttökuskilmálar

Þátttaka í Harpix fantasy er ókeypis og engu er veðjað. Þessir skilmálar gilda um alla sem stofna aðgang og skrá lið.

Hver rekur leikinn

Þátttaka

Til að skrá lið þarf aðgang með netfangi og lykilorði. Hver einstaklingur má aðeins eiga einn aðgang. Þátttaka kostar ekkert, ekkert fé er lagt undir og leikurinn felur ekki í sér veðmál.

Liðið er 12 leikmenn, þar af 7 í byrjunarliði, innan fjárhagsramma og að hámarki 3 úr sama félagi. Nánar á reglusíðunni.

Liðsnafn

Liðsnafnið er það eina sem aðrir sjá um þig, og það birtist opinberlega á stigatöflum. Nafnið má ekki bera persónuupplýsingar annarra, meiðyrði, hatursáróður eða markaðsefni. Við megum breyta nafni sem brýtur gegn þessu og látum vita þegar það er gert.

Tölfræði og stig

Tölfræðin kemur úr mótakerfi Handknattleikssambands Íslands og er birt eins og hún berst. Við ábyrgjumst ekki að hún sé rétt, tæmandi eða tímanleg.

Stig eru bráðabirgðastig þar til umferð hefur verið gerð upp. Berist leiðrétting frá HSÍ eftir uppgjör kann staðan að breytast. Berist gögn alls ekki getum við frestað uppgjöri umferðar. Teljir þú stig röng skaltu senda okkur ábendingu; við förum yfir hana og svörum.

Breytingar á reglum

Við megum breyta reglum, stigagjöf og fjárhagsramma. Slíkar breytingar taka gildi frá og með næstu umferð en ekki afturvirkt, svo stig sem þegar eru unnin standa. Undantekning er leiðrétting á augljósri villu eða misnotkun.

Við megum fresta leiknum eða hætta honum af málefnalegum ástæðum, svo sem ef deildin fellur niður eða gögn hætta að berast.

Misnotkun

Óheimilt er að stofna fleiri en einn aðgang, nota sjálfvirkni eða vélmenni, eða nýta sér galla í kerfinu. Brot geta leitt til leiðréttingar á stigum eða lokunar aðgangs. Teljir þú ákvörðun ranga geturðu andmælt henni með því að senda okkur erindi, og við svörum þeim.

Ábyrgð

Leikurinn er veittur eins og hann er og við lofum ekki órofnum rekstri. Ábyrgð okkar er takmörkuð eins og lög leyfa. Ófrávíkjanlegur réttur neytenda samkvæmt íslenskum lögum stendur óhaggaður.

Lög og lögsaga

Um skilmálana gilda íslensk lög og ágreiningur heyrir undir íslenska dómstóla.

Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefnan.