Liðin voru jöfn í hálfleik, 13–13, en Afturelding tók frumkvæðið eftir hlé og náði mest átta marka forskoti. HK 2 minnkaði muninn undir lokin en sigur heimakvenna var ekki í hættu.
Katrín Helga Davíðsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Aftureldingu og Bertine Hansen Elvegaard varði ellefu skot. Auður Guðmundsdóttir var markahæst hjá HK 2 með sjö mörk.
Afturelding hefur unnið alla átta leiki sína og er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar.






