HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Grill66deild kvenna

FH með öruggan útisigur á Gróttu2

FH með öruggan útisigur á Gróttu2

Mynd: FH handboltiFH með öruggan útisigur á Gróttu

FH vann 30–25 sigur á Gróttu 2 í Grill 66 deild kvenna í handbolta á Seltjarnarnesi á sunnudag og heldur áfram að fylgja toppliði Aftureldingar eftir.

FH-konur byrjuðu leikinn betur og leiddu 17–11 í hálfleik. Heimakonur náðu að minnka muninn í þrjú mörk í síðari hálfleik en Hafnfirðingar héldu forystunni og tryggðu sér fimm marka sigur.

Eva Aðalsteinsdóttir var markahæst hjá FH með sex mörk og Sigrún Ásta Möller varði átta skot. Elísabet Ása Einarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Gróttu.

FH er í öðru sæti deildarinnar með tólf stig en Grótta 2 er með tvö stig.
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. HK með mikilvægan sigur gegn StjörnunniOlísdeild karla
  2. Afturelding heldur áfram að styrkja sig á toppnumGrill66deild kvenna
  3. FH sá til þess að Selfyssingar eru enn án sigursOlísdeild karla
  4. Sissi hættur hjá Val - Óskar kemur í staðinnOlísdeild kvenna
  5. Síðasta umferð gerð upp - Spennandi leikir fram undan í Olísdeild kvennaOlísdeild kvenna
Vefumsjón: Gonora