Bertine kemur til félagsins frá Noregi en hún varði 11 skot í leik liðsins gegn HK2 í gær. Auður Brynja gengur til liðs við Aftureldingu frá Víking en hún hafði gefið það upp fyrir tímabilið að hún væri hætt í handbolta.
Afturelding hefur unnið alla átta leikina sína og er ljóst að liðið ætlar sér upp. Félagið hefur þó ekkert birt um komu þessara leikmanna.






