ÍBV vann 27–21 sigur á Stjörnunni í Olísdeild kvenna í handbolta á laugardag þar sem Sandra Erlingsdóttir fór mikinn í liði heimakvenna.
Eyjakonur byrjuðu af krafti og skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins. ÍBV leiddi 13–7 í hálfleik en Stjarnan náði að minnka muninn í þrjú mörk í síðari hálfleik. Heimakonur voru þó sterkari á lokakaflanum og tryggðu sér sex marka sigur.
Sandra Erlingsdóttir skoraði 16 mörk fyrir ÍBV og Amelía Dís Einarsdóttir bætti við fjórum. Inga María Roysdóttir var markahæst hjá Stjörnunni með níu mörk.
ÍBV er í öðru sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka.






