Framkonur náðu snemma yfirhöndinni og leiddu með sex mörkum í hálfleik, 16–10. Gestirnir héldu áfram að stýra leiknum eftir hlé og náðu mest níu marka forskoti áður en sjö marka sigur var í höfn.
Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir var markahæst hjá Fram með átta mörk og Ethel Gyða Bjarnasen varði 13 skot. Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði sex mörk fyrir ÍR.
Fram er nú með tíu stig í fjórða sæti deildarinnar en ÍR er með níu stig.
Fram er nú með tíu stig í fjórða sæti deildarinnar en ÍR er með níu stig.






