Gróttumenn voru ekki í miklum erfiðleikum með Víðismenn en þeir unnu sannfærandi 15 marka sigur 35-19 og eru komnir áfram í 16- liða úrslitin.
ÍBV 2 tók á móti Herði en þar er mikill rígur eftir allt sem gekk á í fyrra þegar einmitt þessi sömu lið mættust. Þessi leikur var miklu prúðari og ekki þörf á lögreglufylgd en ÍBV 2 vann Hörð aftur og nú með fjórum mörkum 32-28 og eru þá líka komnir áfram í 16-liða úrslitin.
Á morgun mætast Fjölnir og ÍR og berjast um síðasta sætið í 16-liða úrslitunum.






