Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann sannfærandi sigur á Úkraínu í dag en leiknum lauk með 22 marka sigri Íslands, 48–26.
Íslendingar tóku strax öll völd á vellinum og komust í fimm marka forskot á fyrstu tíu mínútunum. Sóknarleikurinn gekk vel og Viktor Gísli Hallgrímsson var öflugur á milli stanganna. Úkraínumenn áttu í miklum vandræðum með íslenska liðið sem jók forskotið jafnt og þétt. Þegar flautað var til hálfleiks var Ísland komið með 14 marka forystu, 23–9.
Yfirburðir íslenska liðsins héldu áfram í síðari hálfleik. Íslendingar héldu uppi miklum hraða og forskotið hélt áfram að vaxa. Þegar um stundarfjórðungur var eftir var munurinn orðinn 20 mörk og ljóst í hvað stefndi. Ísland sigldi að lokum öruggum 22 marka sigri í höfn.
Markaskorunin dreifðist vel á milli leikmanna Íslands en Ómar Ingi Magnússon, Óðinn Þór Ríkharðsson, Reynir Þór Stefánsson og Bjarki Már Elísson voru markahæstir með sex mörk hver. Bjarki nýtti öll sex skot sín í leiknum.
Viktor Gísli Hallgrímsson átti góðan leik í marki Íslands og varði sjö skot af þeim 16 sem hann fékk á sig, eða 44%. Björgvin Páll Gústavsson varði sex skot, eða 26%, og skoraði auk þess eitt mark í síðari hálfleik.
Ómar Ingi náði merkum áfanga í þessum leik en hann skoraði sitt 400 mark fyrir landsliðið.
Markaskorarar Íslands:
Ómar Ingi Magnússon 6, Óðinn Þór Ríkharðsson 6, Reynir Þór Stefánsson 6, Bjarki Már Elísson 6, Orri Freyr Þorkelsson 4, Kristján Örn Kristjánsson 3, Janus Daði Smárason 3, Gísli Þorgeir Kristjánsson 3, Elliði Snær Viðarsson 2, Arnar Freyr Arnarsson 2, Sigvaldi Björn Guðjónsson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Haukur Þrastarson 1, Björgvin Páll Gústavsson 1, Elvar Örn Jónsson 1.






