Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari liðsins en hann er einn besti þjálfari landsins. Víkingar hafa litið mjög vel út á undirbúningstímabilinu en þetta er kjarni sem hefur spilað saman í nokkur tímabil. Þeir hafa verið duglegir að sækja sér leikmenn og bæta í breiddina fyrir veturinn en það sem gæti orðið liðinu að falli er reynsluleysi. Það mun mikið mæða á Ásgeiri Snæ Vignissyni hægri skyttu liðsins en án hans er lítil skot ógn og liðin á móti þeim geta bakkað.
Víkingar verða að spila vel á móti liðunum í neðri helmingnum og stela sigrum þar en við spáum því að þetta verði mjög þéttur pakki í neðri helming deildarinnar.
Víkingar verða að spila vel á móti liðunum í neðri helmingnum og stela sigrum þar en við spáum því að þetta verði mjög þéttur pakki í neðri helming deildarinnar.






