HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild kvenna

10. Dagar í Olísdeild kvenna: 10. Sæti

10. Dagar í Olísdeild kvenna: 10. Sæti

Mynd: Víkingur handbolti

Olísdeild kvenna hefst eftir 10 daga og mun Harpixið hita upp fyrir deildina með að telja niður og opinbera spá sína fyrir deildarkeppnina á komandi tímabili.

Í 10. sæti deildarinnar setjum við Víking. Það hefur heldur betur mikið gengið á í Virkinu í sumar. Margir leikmenn hafa horfið á brott eða hætt í handbolta og það urðu þjálfaraskipti hjá liðinu. Eva Hrund Harðardóttir tók við liðinu af Sebastian Alexanderssyni en sagði upp störfum óvænt í kvöld útaf persónulegum ástæðum.

Liðið hefur tapað öllum leikjum sínum á undirbúningstímabilinu og tveimur þeirra mjög illa. Það verður áhugavert að fylgjast með Víkingum í vetur en það virðist vera að þær hefðu þurft 1-2 tímabil í viðbót í grillinu áður en þær færu upp. 


Fréttin hefur verið uppfærð
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora