HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Landslið kvenna

Á lista yfir 10 markahæstu leikmenn

Á lista yfir 10 markahæstu leikmenn

Mynd: HSÍ

Undanfarna viku hefur heimsmeistaramót U20 kvenna farið fram í Jinzhong í Kína. Ísland er af sjálfsögðu á meðal keppanda, en liðið er að berjast um forsetabikarinn eftir að það náði ekki að komast upp úr riðlinum sínum. 

Það vekur hins vegar athygli að Guðrún Hekla Traustadóttir leikmaður Vals er næst markahæsti leikmaðurinn á mótinu, en hún hefur skorað 37 mörk  í 5 leikjum. Guðrún er markahæsti leikmaður liðsins en Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir er í 12. sæti á listanum með 29 mörk. Hún er einnig leikmaður Vals. Næsti leikur liðsins er gegn Egyptalandi á morgun klukkan 08:15 á íslenskum tíma. 

Hér má sjá lista yfir 10 markahæstu leikmenn mótsins til þessa. 


1. Kirstine Emilie Hoppe, Danmörk, 45 mörk

2. Guðrún Hekla Traustadóttir, Ísland, 37 mörk

3. Ayoung Suh, Kórea, 36 mörk

4. Zuzanna Zimnicka, Pólland, 36 mörk

5. Maggie Doherty Dahllof, Bandarríkin, 36 mörk

6. Shivani Devi, Indland, 34 mörk

7. Martina Maticevic, Austurríki, 32 mörk

8. Chiara Rohr, Þýskaland, 32 mörk

9. Teodora-Lavina Damian, Rúmenía, 31 mörk

10. Ada Aalstad, Noregur, 30 mörk

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  4. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora