Í 11 sæti spáir Harpixið Selfossi.
Það var í raun og veru erfitt að meta hvort að það ætti að setja Stjörnuna eða Selfoss í 12-11. sæti deildarinnar en eftir að hafa séð brot úr leikjum beggja liða á undirbúningstímabilinu var þetta niðurstaðan. Það hafa ekki verið miklar breytingar á Selfossi fyrir utan þjálfaraskiptin en Örn Þrastarson tók við þjálfun liðsins af Carlos Martin. Örn hefur verið í kringum meistaraflokk Selfoss í fjölmörg ár og því er ekki von á miklum breytingum á leik liðsins.
Það eru margir ungir og spennandi leikmenn að koma upp hjá Selfossi sem munu þurfa að stíga upp í vetur. Það mun mikið mæða á þessum ungu leikmönnum en það hefur enginn komið til félagsins og Sverrir Pálsson er sá eini sem hefur hætt. Hannes Höskuldsson var lang besti leikmaður liðsins á síðasta tímabili og mun halda áfram að skora mörkin.
Til þess að Selfoss bjargi sér frá falli munu þeir þurfa að gera SET höllina að algjöru virki.
Til þess að Selfoss bjargi sér frá falli munu þeir þurfa að gera SET höllina að algjöru virki.






