HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

12. Dagar í Olísdeild karla: 12. Sæti

12. Dagar í Olísdeild karla: 12. Sæti

Mynd: Stjarnan handbolti

Það eru 12 dagar í að Olísdeild karla hefjist og í tilefni þess mun Harpixið telja niður dagana með því að opinbera tímabæru spá sína fyrir deildarkeppnina. 

Í tólfta sætið setur Harpixið Stjörnuna. 

Það hafa átt sér stað miklar breytingar í Garðabænum fyrir tímabilið en Hrannar Guðmundsson og Arnar Daði Arnarsson létu af störfum sem þjálfarar liðsins og við tóku þeir Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson. Adam Thorstensen, Benedikt Marínó, Hans Jörgen, Jón Ásgeir og Sveinn Andri hafa allir yfirgefið félagið og hafa þeir Dagur Sverrir Kristjánsson, Tóki Friðriksson og Róbert Örn komið í staðinn.

Stjarnan var í miklu basli á síðasta tímabili og rétt björguðu sér frá falli með sigri gegn Fjölni í oddaleik. 

Það mun mikið mæða á þeim Ísaki Loga Einarssyni og spilandi þjálfaranum Tandra Má í vetur en Stjörnumenn hafa tapað öllum æfingaleikjunum sínum á undirbúningstímabilinu. Það eru efnilegir árgangar að koma upp í Stjörnunni og það er spurning hvort að garðbæingar séu tilbúnir að fórna þessu tímabili fyrir frekari árangur seinna og leyfa minni spámönnum að spila mikið og öðlast reynslu.
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora