HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

6. Dagar í Olísdeild karla: 6. Sæti

6. Dagar í Olísdeild karla: 6. Sæti

Mynd: ÍBV handbolti

Það eru 6 dagar í fyrsta leikinn í Olísdeild karla og Harpixið spáir því að ÍBV verði í sjötta sæti.

Það er alltaf erfitt að mæta til Eyja og það mun ekki breytast í ár. Erlingur Richards er einn besti þjálfari landsins og hann kann að búa til góða handboltamenn og góða liðsheild. Eyjamenn lentu í áfalli í sumar þegar að þeirra besti maður Elís Þór Aðalsteinsson sleit krossband en hann verður ekkert með í vetur. Dagur Arnars, Daníel Þór og Sigtryggur munu byrja fyrir utan ef marka má æfingarleiki liðsins en þeir geta allir á sínum degi verið bestu sóknarmenn deildarinnar ásamt því að vera frábærir í vörn. 

Það poppa alltaf upp nýir og efnilegir leikmenn upp í Eyjum þegar einhverjir detta út og það verður gaman að sjá hinn unga Anton Frans í hægra horninu taka meiri ábyrgð í vetur. Eyjamenn verða að spila góða vörn og fá markvörslu í vetur ef að þeir ætla að eiga breik. 

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora