HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

9. Dagar í Olísdeild karla: 9. Sæti

9. Dagar í Olísdeild karla: 9. Sæti

Mynd: Þór handbolti

Nú eru 9 dagar í að Olísdeild karla hefjist og spáir Harpixið því að Þórsarar verði liðið sem rétt missir af úrslitakeppni. 

Þórsarar hafa verið duglegir á félagaskiptamarkaðnum og það er óhætt að segja að það verði danskir dagar fyrir norðan í vetur. Þeir hafa sótt fjóra dana og Jóhann Geir Sævarsson er kominn aftur eftir að hafa verið hjá KA síðustu ár. 

Það er óþæginlegt að fara norður og mæta þórsurum en það má búast við því að liðið muni spila miklu hraðari bolta í vetur eins og einkennir oft danska leikmenn. Oddur Grétarsson, Þórður Tandri og Hafþór Vignisson verða allir áfram í lykilhlutverkum hjá liðinu en þeir geta á sínum degi allir verið með betri leikmönnum deildarinnar. 

Það verður gaman að fylgjast með Þórsurum í vetur og hver veit nema að þeir dúkki upp í úrslitakeppnissæti. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora