HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Grill66deild karla

Áfram heldur Grótta að bæta við sig leikmönnum

Áfram heldur Grótta að bæta við sig leikmönnum

Mynd: Grótta handbolti

Handknattleiksdeild Gróttu tilkynnti fyrir stuttu að Róbert Dagur Davíðsson hefur gengið til liðs við félagið. Róbert kemur til Gróttu frá FH/ÍH en hann skoraði 56 mörk í Grill66 deildinni á síðasta tímabili. Þetta er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við karlalið Gróttu í sumar. 

„Við fögnum því að fá Róbert Dag í okkar raðir. Hann er góður sóknarlega og getur leyst nokkrar stöður fyrir okkur varnarlega. Hann mun mynda frábært hornateymi vinstra megin með Kára Kvaran. Ég hlakka mikið til að vinna með honum næstu árin“ Er haft eftir Andra Sigfússyni þjálfara liðsins í tilkynningunni. 

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  4. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora