HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild kvenna

Áfram styrkja Stjörnukonur sig

Áfram styrkja Stjörnukonur sig

Mynd: Stjarnan handbolti

Stjarnan var að tilkynna á miðlum sínum að Króatinn Dora Pajic hafi samið við félagið.

Dora kemur til Stjörnunnar frá Osijek sem leikur í efstu deild í heimalandinu. Dora er rétthent skytta sem getur líka spilað í stöðu leikstjórnanda. 

Stjörnukonur hafa verið duglegar að styrkja sig en hún er sjöundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Stjörnuna og þriðji útlendingurinn sem kemur. 

Það er ljóst að Stjarnan ætlar sér stóra hluti í Olís Deild Kvenna á næsta tímabili en liðið fór í umspil um sæti í Olís deildinni á síðasta tímabili og vann Gróttu í oddaleik og rétt svo hélt sér uppi áður en ákveðið var að stækka deildina. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora