FRÉTT
Afturelding ennþá taplausar

Mynd: Afturelding handbolti
Afturelding og Valur 2 mættust í Grill66 deild kvenna í kvöld í Myntkaup höllinni.Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með en Mosfellingar mun sterkari síðustu mínutur fyrri hálfleiksins og staðan var 18-13 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var svo eins og sá fyrri endaði og uppskáru Mosfellingar að lokum tíu marka sigur 32-22 og hafa nú unnið alla leikina sína til þessa. Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir fór hamförum í markinu hjá Aftureldingu og varði 21 skot.





