HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
Erlendar fréttir

Arnar Freyr sótti sigur í sínum fyrsta leik

Arnar Freyr sótti sigur í sínum fyrsta leik

Mynd: sg-flensburg-handewitt.de

Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark í gær þegar lið hans Flensburg sótti sigur gegn Eisenach. Leikurinn var mjög jafn og skiptust liðin á að vera með forystuna. Hálfleikstölur voru 20 - 18 Flensburg í vil. Það tók þó Eisenach ekki nema um 3 mínútur að komast yfir í seinni hálfleik en 20 - 21. Á 45 mínútu kom skoraði Arnar Freyr sitt mark til að koma Flensburg einu marki yfir, 26 - 25. Leikurinn hélt áfram að vera jafn en endaði svo á að Flensburg sigraði með tveggja marka mun, 33 - 31.

Aymeric Minne var að spila sinn fyrsta leik fyrir Flensburg, hann endaði leikinn með 6 mörk. Markahæsti leikmaður vallarins var Simon Pytlick, leikmaður Flensburg, hann endaði með 7 mörk.


Arnór Þór Gunnarsson tókst ekki að sækja sigur í leik sínum. Endatölur þar urðu TVB Stuttgart 30 - 29 Bergischer HC


Í dag spilar svo Göppingen við Erlangen klukkan 17:00. 


Fyrsta umferð þýska boltans lýkur svo á morgun. 


Leikir morgundagsins:

Gummersbach - Magdeburg klukkan 13:00. Íslendingaslagur af bestu gerð. Margir af okkar landsliðsmönnum í eldlínunni. Íslendingar í Gummerbach eru Elliði Viðarsson (fyrirliði liðsins), Teitur Örn Einarsson, Garðar Ingi Sindrason og Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Hjá Magdeburg eru Ómar Ingi Magnússon, Elvar Örn Jónsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson.


Wetzlar - Bietigheim klukkan 14:30. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Wetzlar.


Hannover Burgdorf - Rhein Neckar Löwen 14:30. Sigvaldi Björn Guðjónsson er nýr liðsmaður Hannover Burgdorf. Haukur Þrastarson er leikmaður Rhein Neckar Löwen.


Balingen - HCH (Hamburg) 16:00. Einar Þorsteinn Ólafsson er leikmaður HCH.


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er Víkingur að draga liðið sitt úr keppni korteri í mót?Olísdeild kvenna
  2. Meiðslavandræði í Kórnum?Olísdeild karla
  3. 11. Dagar í Olísdeild karla: 11. SætiOlísdeild karla
  4. 10. Dagar í Olísdeild karla: 10. SætiOlísdeild karla
  5. Hættir með Víking 10 dögum fyrir fyrsta leikOlísdeild kvenna
Vefumsjón: Gonora