HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Atvikið: Þegar að Guðjón Valur braut hjörtu Mosfellinga

Atvikið: Þegar að Guðjón Valur braut hjörtu Mosfellinga

Mynd: Akureyri.net/Skapti Hallgrímsson

Atvikið er komið aftur eftir að hafa tekið sér smá pásu og nú er komið að einu rosalegasta atviki sem menn muna eftir. 

Árið er 2001 og Afturelding og KA eru að berjast í undanúrslitum Íslandsmótsins. Það er oddaleikur og staðan er 24-23 fyrir Mosfellingum þegar að leiktíminn rennur út og á KA einungis eitt aukakast eftir. 

Hinn ungi Guðjón Valur Sigurðsson stígur upp og tekur aukakastið sem endar með marki og leikurinn fer í framlengingu sem að KA menn vinna að lokum. Þetta er atvik sem að Mosfellingar muna ennþá eftir en þeir vilja meina að aukakastið hafi aldrei átt að fá að standa. 

Hægt er að sjá atvikið hér og getur hver dæmt fyrir sig hvort að markið hafi átt að standa eða ekki.
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora