Slóvenski handboltamaðurinn Blaz Janc hefur framlengt samning sinn við FC Barcelona um tvö ár til viðbótar og verður hjá félaginu til 30. júní 2030.
Samningurinn milli Barça og hins fjölhæfa örvhenta leikmanns þýðir að Janc mun halda áfram farsælli tíð sinni hjá katalónska stórliðinu. Fyrri samningur hans átti að renna út sumarið 2028.
Janc gekk til liðs við Barcelona árið 2020 og fer því nú að vera búinn að spila með liðinu í heilan áratug. Í gegnum árin hefur hann orðið sífellt mikilvægari hluti af liði Carlos Ortega.
Janc endaði tímabilið með eftirminnilegri frammistöðu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, þar sem hann skoraði sex mörk og lagði upp fimm í úrslitaleiknum gegn Füchse Berlin.
Slóveninn, sem er 29 ára gamall, hefur þegar byggt upp glæsilegt bikarasafn í treyju Barça. Síðan hann gekk til liðs við félagið hefur Janc unnið fjóra Meistaradeildartitla, unnið spænsku deildina sex sinnum og sex sinnum unnið bikarkeppnina Copa del Rey.
“Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að spila í svona mörg ár fyrir besta félag í heimi. Allir leikmenn dreyma um að klæðast þessari treyju, og enn frekar um að gera það í svona langan tíma. Mér líður eins og heima. Ég vann mína fyrstu Meistaradeild hér, börnin mín fæddust hér... Þetta er meira en bara félag,“ sagði Janc við Barça Media.






