HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild kvenna

Er Ásdís á leiðinni í Breiðholtið?

Er Ásdís á leiðinni í Breiðholtið?

Mynd: Fram handbolti

Eins og Harpix.is sagði frá á dögunum þá hefur Ásdís Guðmundsdóttir yfirgefið Fram og stefndi allt í það að hún væri að ganga til liðs við Stjörnuna. Nú hefur Harpixið hins vegar heimildir fyrir því að hún sé á leið í Breiðholtið og muni spila með ÍR í vetur. 

Ásdís er reynslumikill leikmaður sem hefur verið í atvinnumennsku og á 10 A-landsleiki. Ásdísi er ætlað að fylla skarðið sem Katrín Tinna Jensdóttir skilur eftir sig en hún hefur haldið út í atvinnumennsku. Ásdís skoraði 100 mörk fyrir Fram í fyrra og er ljóst að hún muni styrkja ÍR liðið mikið. 

Davíð Georgsson og Björgvin Þór Hólmgeirsson tóku við þjálfun kvennaliðs ÍR í sumar eftir að Grétari Áka Andersen var sagt upp störfum. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  4. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora