HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild kvenna

Er Víkingur að draga liðið sitt úr keppni korteri í mót?

Er Víkingur að draga liðið sitt úr keppni korteri í mót?

Mynd: Víkingur handbolti

Harpixinu hefur borist ábendingar úr mismunandi áttum um að allt bendi til þess að að stjórn handknattleiksdeildar Víkings ætli að draga kvennaliðið sitt úr keppni í Olísdeild kvenna 9 dögum fyrir fyrsta leik liðsins. 

Víkingur tilkynnti í gær að Eva Hrund Harðardóttir hafi sagt upp störfum af persónulegum ástæðum. Það hefur reynst mjög erfitt að sækja leikmenn í kvennalið félagsins og samkvæmt heimildum Harpixins hefur verið togstreita milli stjórnar og þjálfara kvennaliðsins þar sem áherslan virðist vera á karla liðinu.

Kvennaliðið er mjög þunnskipað og hefur tapað öllum leikjunum sínum á undirbúningstímabilinu illa. Ef satt reynist þá setur þetta mótafyrirkomulag HSÍ í algjört uppnám korteri fyrir mót og yrði mikið högg fyrir kvennaboltann í landinu. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora