HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Eru nýliðarnir að fá liðsstyrk frá Ásvöllum?

Eru nýliðarnir að fá liðsstyrk frá Ásvöllum?

Mynd: Haukar handbolti

Samkvæmt heimildum Harpixins þá er hornamaðurinn Jón Karl Einarsson á leiðinni til Víkings frá uppeldisfélaginu sínu Haukum. 

Jón Karl er alinn upp hjá Haukum og hefur leikið með meistaraflokknum síðan 2019/2020 en hann tók einnig eitt tímabil með HK í Olís Deildinni. Jón Karl hefur verið að æfa með Víkingum og tók m.a þátt í æfingarleik liðsins gegn FH á dögunum. 

Víkingar hafa verið í leit af vinstri hornamanni en á tímabili voru þeir Hákon Daði Styrmisson og Ihor Kopyshynskyi orðaðir við félagið sem nú virðist hafa fundið sér hornamann. 

Jón Karl skoraði 87 mörk í 13 leikjum með U-liði Hauka í Grill66 deildinni á síðasta tímabili.
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora