HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

Frá Koldstad í Úlfarsárdalinn?

Frá Koldstad í Úlfarsárdalinn?

Mynd: Koldstad håndball

Samkvæmt heimildum Harpixins þá er Sigurjón Guðmundsson í samningsviðræðum við Fram. Sigurjón kemur til Fram frá Koldstad í Noregi en Koldstad unnu norsku deildina í vetur.

Samningur Sigurjóns við Koldstad rann út í sumar og stefndi allt í það að hann myndi feta í fótspor föður síns og semja við Val en hann var í viðtali hjá handkastinu í byrjun sumars þar sem hann sagðist stefna á það að spila áfram erlendis en væri þó í viðræðum við íslensk lið líka. 

Fram er í leit af markmanni en Breki Hrafn er á leiðinni til Benfica. Harpixið hafði áður greint frá því að markvörður Selfoss, Alexander Hrafnkelsson væri á leiðinni í úlfarsárdalinn en því kauptilboði var hafnað eftir því sem Harpixið kemst næst. 

Þetta yrði gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Frammara sem eru einnig í leit af hægri hornamanni eftir að Eiður Rafn Valsson var keyptur til FH í vikunni. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er leikmaður Aftureldingar á leiðinni norður?Olísdeild karla
  2. Annar ungur leikmaður lánaður úr MosfellsbæOlísdeild karla
  3. Selfoss vann Víking í tvígang á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  4. Livey sér um útsendingar handboltapassans í veturErlendar fréttir
  5. Snýr heim og fer í ValOlísdeild kvenna
Vefumsjón: Gonora