HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild kvenna

Fram sigraði Selfoss í Olísdeild kvenna

Fram sigraði Selfoss í Olísdeild kvenna

Mynd: Hkd Selfoss

Fram tók á móti liði Selfoss í kvöld í Lambhagahöllinni í kvöld. Leikurinn var nokkuð jafn en staðan var 11 - 9 í hálfleik. Fram sýndi þó klærnar í seinni og gáfu í, tvívegis náðu þær 5 marka forskoti. Baráttu glatt lið Selfoss gafst þó aldrei upp og reyndu eins og þær gátu til að jafna leikinn, þar var Selma Þóra Jóhannsdóttir fremst í flokki en hún endaði leikinn með 14 varða bolta. Þær náðu þó ekki að jafna leikinn og endaði leikurinn á því að Fram sigraði með 4 mörkum. Fram 21 - 17 Selfoss. 

Þær Malgorzata Trawczynska og Andzelika Petroll voru báðar að spila sinn fyrsta leik fyrir Selfoss, hvorug komst á blað í leiknum.


Markaskorarar Fram:
Katrín Anna Ásmundsdóttir 7

Harpa María Friðgeirsdóttir 4

Sóldís Rós Ragnarsdóttir 3

Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 3

Lena Margrét Valdimarsdóttir 2

Hulda Dagsdóttir1

Ethel Gyða Bjarnasen 1


Markvarsla Fram:

Ethel Gyða Bjarnasen 12


Markaskorarar Selfoss:

Hulda Hrunn Bragadóttir 5

Hulda Dís Þrastardóttir 5

Perla Ruth Albertsdóttir 3

Eva Lind Tyrfingsdóttir 2

Sylvía Bjarnadóttir 1

Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1


Markvarsla Selfoss:

Selma Þóra Jóhannsdóttir 14


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora