HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Grill66deild kvenna

Framlengir á Selfossi

Framlengir á Selfossi

Mynd: Selfoss handbolti

Handknattleiksdeild Selfoss tilkynnti fyrr í dag að Harpa Valey Gylfadóttir hefur framlengt samninginn sinn við félagið til næstu tveggja ára.

Harpa Valey er uppalinn hjá ÍBV en gekk til liðs við Selfoss fyrir þremur árum. Hún er góður leikmaður sem er sterk á báðum endum vallarins en hún var í öllum yngri landsliðum Íslands og hefur leikið með A-landsliði kvenna. 

Það verður gaman að sjá Hörpu Valey og Selfoss mæta til leiks í Grill66 deildinni í vetur en þeim er spáð beint aftur upp. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora