Fjölnir og Grótta spiluðu sannkallaðan æsileik í kvöld í Grill 66 deild karla. Leikurinn var virkilega spennandi og bæði lið í ham. Þegar um 15 mínútur höfðu verið spilaðar var staðan 7 - 10 fyrir Gróttu. Fjölnir slepptu þó ekki takinu og leikurinn var jafn 18 - 18 í hálfleik. Leikurinn hélt áfram að vera jafn í seinni hálfleik en staðan var 26 - 26 eftir 45 mínútna leik. Grótta rankaði þá aftur við sér og komust þægilega í gegnum leikinn. Lokatölur urðu, Fjölnir 32 - 39 Grótta.
Markaskorarar Fjölnis:
Heiðmar Örn Björgvinsson 11
Elvar Þór Ólafsson 7
Aron Breki Oddnýjarson 5
Victor Máni Matthíasson 5
Eiríkur Emil Hákonarson 2
Brynjar Óli Kristjánsson 1
Óli Fannar Pedersen 1
Markaskorarar Gróttu:
Sæþór Atlason 11
Gísli Örn Alfreðsson 8
Arnþór Sævarsson 4
Ásgeir Bragi Bryde Þórðarson 4
Hannes Grimm 4
Sigurður Finnbogi Sæmundsson 3
Ari Pétur Eiríksson 2
Kári Kvaran 2
Egill Oddgeir Stefánsson 1






