HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
Olísdeild kvenna

Hættir með Víking 10 dögum fyrir fyrsta leik

Hættir með Víking 10 dögum fyrir fyrsta leik

Mynd: Víkingur handbolti

Það voru vægast sagt óvænt tíðindi að berast frá Víkingum í kvöld en það var tilkynnt að Eva Hrund Harðardóttir er hætt með liðið einungis 10 dögum fyrir fyrsta leik.

Eva Hrund tók við þjálfun liðsins af Sebastian Alexanderssyni í sumar en hún hefur einungis verið við stjórnvölin í þrjá mánuði. Undirbúningstímabilið hefur gengið illa hjá Víking en félagið hefur átt erfitt með að fá leikmenn og samkvæmt heimildum Harpixins þá fékk Eva ekki þann stuðning sem þurfti til að styrkja hópinn fyrir komandi tímabil. Harpixið hafði samband við Evu Hrund sem benti á tilkynninguna frá Víking.

Víkingur fékk sæti í Olísdeild kvenna eftir að ákveðið var að stækka deildina í 10 lið. Í tilkynningu Víkinga segir að Eva Hrund hafi hætt með liðið af persónulegum ástæðum og að aðstoðarþjálfari hennar Gísli Steinar Jónsson muni taka við þjálfun liðsins tímabundið.

 Fyrsti leikur Víkings í Olísdeildinni er gegn Íslands og bikarmeisturum Vals á útivelli þann 5. september. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Snýr heim og fer í ValOlísdeild kvenna
  2. Meiðslavandræði í Kórnum?Olísdeild karla
  3. 12. Dagar í Olísdeild karla: 12. SætiOlísdeild karla
  4. 11. Dagar í Olísdeild karla: 11. SætiOlísdeild karla
  5. 10. Dagar í Olísdeild karla: 10. SætiOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora