Danska úrvalsdeildin (karla), Handboldligaen hófst í gær.
Opnunarleikurinn var fremur óspennandi en GOG spilaði gegn Skjern.
GOG var með yfirhöndina allan leikinn og byrjuðu þeir mun betur, en staðan var 5-1 eftir 5 mínútna leik. Skjern gerðu þó góða atlögu og náðu að minnka muninn í 3 mörk, hálfleikstölur voru 16 - 13.
Það virtist þó vera meira af því sama í boði í seinni hálfleik þar sem að GOG byrjaði mun betur og komust 7 mörkum yfir þegar 10 mín höfðu verið spilaðar af seinni.
Leikurinn endaði 35 - 29 fyrir GOG.
Lasse Vilhelmsen skoraði 8 mörk fyrir GOG og var markahæsti leikmaður vallarins.
5 leikir verða spilaðir seinna í dag og svo lýkur umferðinni á morgun. Umræddir leikir má sjá hér að neðan:
Donni og félagar í SAH taka á móti Ísak Gústafssyni og félögum (Ringsted). Ísak verður þó fjarri góðu gamni þar sem hann er handabrotinn.
SAH (Skanderborg Aarhus Håndbold) - Ringsted. 16:00
KIF Kolding - Skive. 17:00
Nordsjælland Håndbold - FHK Elite. 17:00
Elvar Ásgeirsson og félagar taka á móti Mors Thy.
Ribe-Esbjerg - Mors Thy. 17:00
SønderjyskE - Aalborg. 17:30
Einnig er leikur HH Elite gegn Viborg í efstu deild kvenna (Kvindligaen) spilaður í dag kl 17:00. Katrín Tinna Jensdóttir spilar fyrir HH Elite en hún samdi við liðið fyrr á þessu ári.
Leikur morgundagsins (27.ágúst)
Íslendingaliðið Holstebro tekur á móti Bjerrinbro-Silkeborg á morgun klukkan 18:00
Arnór Atlason og Jóhannes Berg Andrason verða væntanlega báðir á staðnum en Benedikt Gunnar Óskarsson verður fjarverandi vegna meiðsla.
Holstebro - Bjerringbro-Silkeborg. 18:00






