HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Yngri flokkar

Handknattleiksdeild Harðar svarar fyrir sig

Handknattleiksdeild Harðar svarar fyrir sig

Mynd: Hörður handbolti

Handknattleiksdeild Harðar hefur sent frá sér tilkynningu vegna atviksins sem Harpixið birti í gær um hótannir og hrindingar á milli þjálfara 3. flokks Harðar og Stjörnunnar. Í myndskeiði af atvikinu má sjá þjálfara Harðar slá til þjálfara Stjörnunnar og svo öskra þeir á hvorn annan. Samkvæmt heimildum Harpixins voru þjálfararnir að kalla á hvorn annan allan leikinn. Eftir tilkynningu Stjörnunnar í gær hefur Handknattleiksdeild Harðar birt yfirlýsingu þar sem þeir segja sína hlið af málinu.

Yfirlýsing harðar: 

"Vegna fréttaflutnings og yfirlýsingar Stjörnunnar um atvik eftir leik Harðar og Stjörnunnar 2 í 3. flokki karla á Ísafirði vill félagið koma eftirfarandi á framfæri.
Yfirlýsing Stjörnunnar gefur ekki rétta mynd af því sem gerðist. Það er miður þegar fréttir eru sagðar einhliða, eingöngu frá sjónarhóli annars aðilans. Það rýrir fréttagildi þeirra og trúverðugleika.
Hörður hafnar alfarið fullyrðingum um að aðstoðarþjálfari félagsins hafi hótað þjálfara Stjörnunnar eða fjölskyldu hans lífláti. Það er ósatt. Ásökunin kemur frá þjálfara Stjörnunnar einum og ekkert vitni styður hana. Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu án nokkurrar stoðar. Rétt skal vera rétt. Það er engum til framdráttar að skálda málsatvik.
Samkvæmt vitnum viðhafði þjálfari Stjörnunnar, Daníel Berg Grétarsson, ítrekað mjög ljót ummæli í leiknum um leikmenn Harðar, þjálfara og aðstoðarþjálfara Harðar. Sum ummælin féllu í áheyrn barna og fjöldi vitna var að þessari hegðun hans.
Að leik loknum kreisti þjálfari Stjörnunnar hönd aðstoðarþjálfara Harðar og ýtti harkalega í bringu hans. Aðstoðarþjálfari Harðar losaði sig frá á klaufalegan hátt. Hann átti ekki að stugga við þjálfara Stjörnunnar. Það var rangt og hann hefur viðurkennt það. Hann bað þjálfara Stjörnunnar afsökunar strax að leik loknum en fékk engin svör.
Aðstoðarþjálfari Harðar er sjálfboðaliði. Launaðir starfsmenn íþróttahreyfingarinnar hafa enga heimild til að veitast að sjálfboðaliðum með hótunum og niðrandi orðum, eins og þjálfari Stjörnunnar gerði í vitna viðurvist, og því síður að ungum leikmönnum annarra liða.
Hörður mun tilkynna framkomu þjálfara Stjörnunnar til HSÍ og samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Félagið mun vinna með HSÍ að meðferð málsins í heild sinni og vísar á vitni máli sínu til stuðnings. "
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora