HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild kvenna

Hvað gerðist eiginlega í Úlfarsárdal?

Hvað gerðist eiginlega í Úlfarsárdal?

Mynd: Fram Handbolti

Eins og kollegar okkar hjá handkastid.net hafa skrifað um í sumar þá virðist það vera að þær Ásdís Guðmundsdóttir og Hulda Dagsdóttir séu báðar á förum frá Fram. Ljóst er að þetta verður mikil blóðtaka fyrir framliðið en þær léku báðar lykilhlutverk á síðasta tímabili en Hulda var markahæsti leikmaður liðsins.

Samkvæmt heimildum Harpixins var hluti af leikmannahópi kvennaliðs Fram ósáttur með þjálfarateymi liðsins og sauð upp úr á milli aðila á lokahófi handknattleiksdeildarinnar sem haldið var í byrjun sumars og í kjölfarið var þeim Ásdísi og Huldu frjálst að yfirgefa félagið. Sögur ganga nú um að Ásdís sé á leið í Garðabæinn og muni leika með Stjörnunni á næsta tímabili og að Hulda vilji færa sig á Hlíðarenda.

Harpixið hefur einnig heimildir fyrir því að Afturelding sem leikur í Grill 66 deildinni hafi reynt að sannfæra Huldu um að snúa aftur í Mosfellsbæinn.  

Ljóst er að það verða miklar breytingar hjá kvennaliði Fram en Díana Guðjónsdóttir var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins í byrjun sumars. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er leikmaður Aftureldingar á leiðinni norður?Olísdeild karla
  2. Annar ungur leikmaður lánaður úr MosfellsbæOlísdeild karla
  3. Selfoss vann Víking í tvígang á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  4. Livey sér um útsendingar handboltapassans í veturErlendar fréttir
  5. Verður Aron Rafn ekki með Haukum í vetur?Olísdeild karla
Vefumsjón: Gonora