HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Hvert fer Ihor?

Hvert fer Ihor?

Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Ihor Kopyshynskyi kvaddi lið Aftureldingar í lok tímabils eftir að hafa verið í herbúðum mosfellinga í fjögur ár. Ihor var næst markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með 118 mörk og hefur sýnt það og sannað að hann er einn besti hornamaður deildarinnar. Hákon Daði Styrmisson gekk til liðs við mosfellinga í sumar til að fylla skarðið sem Ihor skildi eftir en hvar endar Ihor?

Samkvæmt heimildum Harpixins þá hefur Ihor verið í viðræðum við nýliða Víkings en það samtal virðist vera að sigla í strand. Harpixið hefur einnig heyrt af því að hans fyrrum félag Þór, hafi áhuga á að fá hann aftur norður.  Ljóst er að Ihor myndi styrkja flest lið deildarinnar og verður það áhugavert að sjá hvar hann endar á að spila á næsta ári. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora