Fyrstu umferð Dönsku úrvalsdeildarinnar lauk í dag þegar Arnór Atlason og félagar í Holstebro unnu sigur gegn Bjerringbro-Silkeborg. Það var mikill hiti á loka mínútum leiksins og fór svo að Alexander Lynggaard (Silkeborg) fékk rautt fyrir gróft brot og svo fékk William Aar (Holstebro) rautt á 60 mínútu fyrir að rífa kjaft eftir því sem ritari sá best. Jóhannes Berg Andrason komst ekki á blað en var með 1 stoðsendingu.
Lokatölur 37 - 33.
Eins og kom fram í gær, þá skoraði Kristján Örn Kristjánsson (Donni) 8 mörk þegar lið hans SAH sóttu 2 stig gegn Ringsted í gær. Ísak Gústafsson var fjarverandi vegna meiðsla. Lokatölur leiksins voru 40 - 34.
Elvar Ásgeirsson (leikmaður Ribe-Esbjerg) skoraði 5 mörk þegar Ribe-Esbjerg fékk Mors-Thy í heimsókn.
Lokatölur leiksins urðu 34 - 32.
Katrín Tinna Jensdóttir lét finna fyrir sér í sínum fyrsta leik með HH Elite gegn Viborg í efstu deild kvenna. Katrín endaði leikinn með 2 mörk. Leikurinn var þó fremur ójafn og þurftu Katrín og félagar að sætta sig við tap. Lokatölur leiksins urðu 21 - 33.
Umferðin í heild sinni:
GOG 35 - 29 Skjern
SAH (Skanderborg Aarhus Håndbold) 40 - 34 Ringsted
KIF Kolding 35 - 34 Skive
Ribe-Esbjerg 34 - 32 Mors Thy
Nordsjælland Håndbold 24 - 31 FHK Elite
SønderjyskE 28 - 32 Aalborg
Holstebro 37 - 33 Bjerringbro-Silkeborg.





