HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

KA sigraði Aftureldingu

KA sigraði Aftureldingu

Mynd: Þórir Tryggva - ka.is

KA hafði betur gegn Aftureldingu í Olísdeild karla í kvöld en leiknum lauk með fjögurra marka sigri KA, 32–28.

Leikurinn var jafn í upphafi og skiptust liðin á að hafa forystuna. KA náði þriggja marka forskoti þegar staðan var 7–4 eftir tæplega ellefu mínútna leik en Afturelding náði að jafna metin í 7–7. Liðin héldu áfram að skiptast á mörkum og var staðan jöfn í hálfleik, 15–15.

KA byrjaði síðari hálfleik betur og komust í 18–16 eftir rúmlega 34 mínútna leik. Afturelding hélt þó í við heimamenn en KA náði að auka forskotið í fjögur mörk þegar staðan var 26–22. Gestirnir náðu að minnka muninn í tvö mörk, 28–26, þegar tæpar fimm mínútur voru eftir en KA hélt haus og tryggði sér að lokum fjögurra marka sigur, 32–28.

Dagur Árni Heimisson og Dagur Gautason voru markahæstir KA með átta mörk hvor. Dagur Gautason nýtti öll átta skot sín í leiknum á meðan Dagur Árni skoraði átta mörk úr þrettán skotum.

Ágúst Elí Björgvinsson átti einnig góðan leik í marki KA en hann varði 13 skot og var með 40% markvörslu.

Hjá Aftureldingu voru Harri Halldórsson og Oscar Sven Leithoff Lykke markahæstir með fimm mörk hvor.

Markaskorarar KA:

Dagur Árni Heimisson 8, 

Dagur Gautason 8, 

Einar Birgir Stefánsson 3, 

Arnór Ísak Haddsson 3, 

Andri Freyr Friðriksson 3, 

Jens Bragi Bergþórsson 3, 

Bjarni Ófeigur Valdimarsson 2, 

Morten Linder 2.

Markaskorarar Aftureldingar:

Harri Halldórsson 5, 

Oscar Sven Leithoff Lykke 5, 

Árni Bragi Eyjólfsson 4, 

Stefán Magni Hjartarson 4, 

Hákon Daði Styrmisson 4, 

Kristján Ottó Hjálmsson 2, 

Leó Halldórsson 1, 

Ævar Smári Gunnarsson 1, 

Hans Jörgen Ólafsson 1, 

Þorvaldur Tryggvason 1.


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora