HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Grill66deild kvenna

Kveður FH til að flytja erlendis

Kveður FH til að flytja erlendis

Mynd: FH handbolti

Thelma Dögg Einarsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik með FH í bili en hún hyggst flytja erlendis. Thelma er skytta sem gekk til liðs við FH frá Stjörnunni árið 2022. Ljóst er að Thelma muni skilja eftir sig risastórt skarð í liði FH en hún skoraði 161 mörk í öllum keppnum á síðasta tímabili og var lang atkvæðamest í liði FH. 

Tilkynning FH:

"Thelma Dögg Einarsdóttir hefur spilað sinn síðasta leik fyrir FH í bili a.m.k. en hún mun í sumar flytja erlendis vegna anna á öðrum vígstöðvum.

Thelma Dögg gekk til liðs við FH í lok árs 2022 og stóð sig virkilega vel í FH-treyjunni þar sem hún með mikilli elju og dugnaði tók miklum framförum á hverju ári og sló rækilega í gegn á yfirstandandi tímabili þar sem hún varð markahæsti leikmaður FH-liðins með 161 mark í öllum keppnum.

Um leið og við þökkum Thelmu Dögg fyrir öll árin í FH þá óskum við henni góðs gengis í því sem framundan er og vonumst til að sjá hana aftur í FH-treyjunni fyrr eða síðar."



Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Fimm leikmenn sem ættu að vera í efstu deild karlaGrill66deild karla
  2. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  3. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  4. Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabiliðOlísdeild karla
  5. Olísdeild Karla: Ótímabær spá - fyrri hlutiOlísdeild karla