HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Okkar markmið er að komast í úrslitakeppnina

Okkar markmið er að komast í úrslitakeppnina

Mynd: mbl.is/Óttar Geirsson

Harpixið heldur áfram að hita upp fyrir Olís deild kvenna og ákvað að slá á þráðinn hjá Ídu Margréti Stefánsdóttur, leikmanns Gróttu sem eru nýliðar í efstu deild.

Nú tekur við nýtt ævintýri við í efstu deild, hversu spennt ertu fyrir því að hefja tímabilið?

Ég bara get ekki beðið, við erum búnar að vera að vinna hart að því að koma okkur aftur upp í Olís deildina þar sem við viljum vera.  

Hvað heldur þú að verði stærsta áskorunin fyrir liðið í efstu deild?

Við þurfum að geta náð upp meiri stöðuleika í leikjum. Það einkennir kannski helst tímabilið í fyrra og við viljum gera betur þar. 

Hvaða markmið hafið þið sett ykkur fyrir komandi tímabil?

Okkar markmið er að komast í úrslitakeppnina. 

Hvernig hefur undirbúningurinn gengið og hvernig líst þér á hópinn fyrir veturinn?

Undirbúningurinn hefur gengið mjög vel. Við erum með góðan hóp sem hefur spilað lengi saman og þekkjum hvor aðra vel. Síðan erum við komnar með nokkra nýja leikmenn sem eru að koma mjög vel inn í hópinn og auka breiddina í hópnum.

Harpix.is spáði Gróttu 8. sæti í ótímabæru spánni sinni.
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  4. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora