FRÉTT
Orri Freyr til Gummersbach

Mynd: Gummersbach
Íslenski landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson hefur skrifað undir samning við Gummersbach til ársins 2029. Orri sem leikur í dag hjá Sporting í Portúgal mun ganga til liðs við Þýska íslendingaliðið næsta sumar. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins en Elliði Snær Vignisson, Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason leika allir hjá Gummersbach.





