ÍBV fékk HK í heimsókn í kvöld.
Leikurinn var fjörugur og léku sóknarmenn liðana á alls oddi í fyrri hálfleik. Kristófer Ísak Bárðarson, sem lék gegn sínu gamla liði í kvöld var í miklum ham og var kominn með 6 mörk fyrir ÍBV þegar flautað var til hálfleiks. Hjá HK-ingum var Gunnar Dan Hlynsson með 5 mörk í fyrri. Lítið var um góðan varnarleik hjá liðunum. Hálfleikstölur ÍBV 19 - 21 HK.
Í seinni hálfleik var svo mjög jafnt á milli liða en staðan eftir 45 mín var 28 - 28. Eftir rétt rúmar 50 mín var staðan svo 30 - 30 þegar að Kári Tómas Hauksson jafnaði leikinn fyrir HK. Loka mínúturnar voru svo vægast sagt spennandi en vörn ÍBV og HK voru komin í gang og ekki var skorað mark frá 54 mín til þeirrar 57 þegar að Trúgvi Hávardsson tók víti og jafnaði leikinn 33 - 33. Trúgvi kom síðan HK-ingum yfir þegar að um 2 mín voru eftir, HK komnir með 34 mörk gegn 33. Daníel Þór Ingason leikmaður ÍBV náði að jafna leikinn þegar um 5 sek voru eftir af venjulegum leiktíma en HK-ingar voru snöggir að taka miðju og Trúgvi Hávardsson átti gott skot frá miðju sem Petar Jokanovic markvörðu ÍBV hreinlega virtist ekki eiga von á og skoraði þar sitt 10 mark í leiknum og vann leikinn fyrir HK.
Lokatölur ÍBV 34 - 35 HK.
Markaskorarar ÍBV:
Daníel Þór Ingason 7
Kristófer Ísak Bárðarson 6
Sveinn José Rivera 4
Magnús Dagur Jónatanson 4
Sigtryggur Daði Rúnarsson 3
Haukur Leó Magnússon 2
Jason Stefánsson 1
Anton Frans Sigurðsson 1
Andri Magnússon 1
Markaskorarar HK:
Trúgvi Hávardsson 10
Kári Tómas Hauksson 5
Alex Máni Oddnýjarson 5
Gunnar Dan Hlynsson 5
Tómas Sigurðsson 4
Andri Þór Helgason 3
Tómas Bragi Lorriaux Starrason 2
Örn Alexandersson 1






