HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild kvenna

Selfoss í Olísdeild kvenna

Selfoss í Olísdeild kvenna

Mynd: HSÍ

HSÍ var rétt í þessu að gefa út tilkynningu þar sem kemur fram að Selfoss hafi tekið við sæti Víkinga í Olísdeild kvenna. Tilkynning HSÍ er svo hljóðandi: 

"Olísdeildin | Selfoss tekur sæti Víkings í Olísdeild kvenna

Selfoss mun leika í Olísdeild kvenna á komandi keppnistímabili. Víkingur dregur lið sitt úr deildinni og Selfyssingum hefur boðist sætið sem þar með losnar. Víkingur mun jafnframt leika í Grill 66 deild kvenna á komandi tímabili.Víkingur var meðal liðanna tíu sem skráð voru til leiks í Olísdeild kvenna, ásamt Val, ÍBV, Haukum, ÍR, Fram, KA/Þór, Stjörnunni, HK og Gróttu. Með þessari breytingu tekur Selfoss sæti Víkings og deildin verður áfram skipuð tíu liðum.Nánar verður farið yfir þetta mál á kynningarfundi Olís- og Grill 66 deildarinnar sem fram fer á morgun klukkan 12:15. Honum verður streymt í beinni á YouTube rás HSÍ."

Einungis 9 dagar eru í fyrsta leik og því verður ansi áhugavert að sjá hvernig Selfoss kemur inn í þetta mót. Víkingar ætla að spila í Grill deildinni á komandi tímabili en ekki er ljóst hvort að allar þær sem hafa samið við liðið á undanförnum vikum munu koma til að spila með þeim þar sem ljóst er að um forsendubrestur sé að ræða.


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora