Handknattleiksdeild Selfoss tilkynnti í dag að þau hefðu samið við tvo nýja leikmenn í kvenna lið sitt. Leikmennirnir eru þær Malgorzata Trawczynska og Andzelika Petroll. Í tilkynningu Selfoss kemur fram að Malgorzata sé 29 ára gömul örvhent skytta sem á leiki með Pólsku liðunum Zaglebie Lubin, Potrcovia og JKS Jaroslaw. Einnig hefur hún spilað í Ungverjalandi með DKKA og Alba Fehérvár.
Andzelika er 25 ára gamall línumaður sem leikið hefur SPR Gdynia og Szczypiorno Kalisz í Póllanid.
Leikmennirnir verða í eldlínunni þegar að Selfossi spila gegn Fram þann 1. október í Olísdeild kvenna.
Malgorzata og Andzelika verða komnar inn í fantasy leik Harpix.is á næstu dögum.






