HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Grill66deild kvenna

Sigurjón verður þjálfari FH

Sigurjón verður þjálfari FH

Mynd: Hafliði Breiðfjörð

Eins og handkastið sagði frá í gær þá hefur Árni Stefán Guðjónsson látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH en hann var kjörinn í bæjarstjórn í Hafnarfirði og því lætur hann af störfum. Árni hafði verið þjálfari liðsins í þrjú ár. 

Samkvæmt heimildum Harpixins þá er búið að ráða Sigurjón Friðbjörn Björnsson sem aðalþjálfara liðsins en hann var aðstoðarþjálfari Árna Stefáns. Sigurjón var áður þjálfari Gróttu, Stjörnunar, Fjölnis og ÍR og var á sínum tíma landsliðsþjálfari U17 og U15 kvenna. Nú hafa þrjú af fjórum meistaraflokksliðunum í Grill66 deild kvenna skipt um þjálfara fyrir komandi tímabil en ljóst er að samkeppnin um að komast upp í Olís deildinna verður hörð. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  4. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora