HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Sigurður Dan með 22 varða þegar Stjarnan sótti sinn fyrsta sigur

Sigurður Dan með 22 varða þegar Stjarnan sótti sinn fyrsta sigur

Mynd: Stjarnan handbolti

Stjarnan tók á móti Fram í kvöld í TM Höllinni í Garðabæ.

Þegar um 10 mín voru liðnar af leiknum var staðan 6-5 Stjörnumönnum í vil. Næstu mínútur buðu upp á meira af því sama en staðan var 11 - 9 þegar um 20 mínútur höfðu verið spilaðar. Hálfleikstölur voru Stjarnan 17 - 15 Fram.

Seinni hálfleikur var hins vegar Stjörnumanna. Þeir svoleiðis völtuðu óvænt yfir Fram, það virðist sem að hugur Framara hafi verið annars staðar í kvöld en lokatölur voru Stjarnan 37 - 29 Fram. 


Þetta var leikur til að gleyma hjá skyttum Fram, þeim Max Emil Stenlund og Hauki Inga Haukssyni en þeir voru með 30% og 33% nýtingu í leiknum samkvæmt HBstatz. Á sama tíma gerði Sigurður Dan Óskarsson sér lítið fyrir og var með 22 varða bolta. Mikilvægur sigur fyrir Stjörnuna en þeir eru nú með 3 stig í Olísdeild karla. 


Markaskorarar Stjörnunnar:

Ísak Logi Einarsson 10

Jóel Bernburg 7

Tandri Már Konráðsson 6

Gauti Gunnarsson 6

Dagur Sverrir Kristjánsson 5

Bjarki Jóhannsson 2

Tóki Friðriksson 1


Markaskorarar Fram:

Theodór Sigurðsson 7

Haukur Ingi Hauksson 4

Max Emil Stenlund 3

Ívar Logi Styrmisson 3

Kristján Pétur Barðason 3

Dagur Fannar Möller 2

Alex Unnar Hallgrímsson 2 

Magnús Öder Einarsson 2


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora