HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Skórnir komnir af hillunni?

Skórnir komnir af hillunni?

Mynd: Fjarðafréttir/Vignir Guðnason

Samkvæmt heimildum Harpixins er hornamaðurinn Arnar Freyr Ársælsson að íhuga að taka skónna af hillunni og hefur verið að æfa með FH á undirbúningstímabilinu. 

Arnar Freyr þekkir vel til í Kaplakrikanum en hann lék með FH á árunum 2016 - 2021. Hann hefur einnig leikið með Fram, KA og Stjörnunni hér á landi. Arnar Freyr var lykilmaður í öllum sínum liðum en hann hætti í handbolta fyrir 2-3 árum síðan. Arnar Freyr hefur eitthvað spriklað með ÍH sem er venslafélag FH frá því að hann hætti. 

Arnar Freyr þótti vera einn besti hornamaðurinn í deildinni ásamt því að vera frábær varnarmaður áður en að skórnir fóru á hilluna. Arnar hefur verið að gera það gott sem markaðsstjóri Nocco síðustu ár. 

Samkvæmt heimildum Harpixins er Arnar Freyr hugsaður til að auka breiddina en FH er að taka þátt í Evrópudeildinni í vetur. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora