Í gær fór fram viðureign Selfoss gegn Val í fyrstu umferð Olísdeildarinnar. Það var þétt setið í Set-höllinni og stemningin var eftir því.
Leikurinn byrjaði virkilega vel hjá Selfoss og komust þeir fjórum mörkum yfir þegar um 5 mínútur voru liðnar, 5 - 1. Valsmenn fóru þá að malla á meðan að Selfyssingar fóru illa með góð færi. Eftir um 10 mínútna leik var staðan því orðin 5 - 5. Áfram hélt leikurinn að vera jafn þar sem liðin skiptust á að skora. Arnór Snær Óskarsson, leikmaður Vals, endaði fyrri hálfleik með 7 mörk og Hákon Garri Gestsson í liði Selfoss með 5 stykki. hálfleikstölur voru 15 - 17
Seinni hálfleikur bauð einnig upp á frábæra skemmtun.
Það var virkilega jafnt á milli liða og enn skiptust liðin á að skora. Á 40 mínútu leiksins komst Valur þó í 3 marka forskot og endaði Selfoss á því að elta í raun allan leikinn eftir það. Selfoss komst þeim næst þegar að þeir minnkuðu muninn í 2 mörk þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum. Valsmenn voru hins vegar sterkari aðilinn og sigldi leiknum heim. Lokatölur Selfoss 30 - 34 Valur.
Hver var helsti munur liðanna?
Helsti munur liðanna í gær var í raun reynslan. Selfoss liðið var skipað 100% heimamönnum sem hafa allir farið í gegnum barna og unglingastarf þeirra og margir hverjir að stíga sín fyrstu spor í meistaraflokks bolta. Of margir tapaðir boltar á stórum mómentum leiksins og slök nýting á of mörgum dauðafærum varð þeim að falli. Þessi leikur lofar þó virkilega góðu fyrir framhaldinu hjá þeim.
Hverjir stóðu uppúr?
Í liði Vals var Arnór Snær Óskarsson virkilega flottur og endaði leikinn með 10 mörk og 1 stoðsendingu. Það var hins vegar liðsfélagi hans, Gunnar Róbertsson sem var besti leikmaður vallarins, hann endaði leikinn með 9 mörk og 8 stoðsendingar og var heilt yfir alveg frábær þrátt fyrir 4 tapaða bolta.
Í liði Selfoss voru þeir Tryggvi Sigurberg Traustason og Hákon Garri Gestsson virkilega öflugir. Tryggvi var virkilega yfirvegaður allan leikinn og endaði með 6 mörk, 7 stoðsendingar og 4 brotin fríköst. Hákon var í miklum gír í fyrri hálfleik en róaðist í seinni, hann endaði með 7 mörk og 1 stoðsendingu. Sveinn Ísak Hauksson (fæddur 2010) var með óvænta innkomu en hann er að stíga sín fyrstu spor í meistaraflokki. Sveinn skoraði 3 mörk og 1 stoðsendingu en einnig lét hann finna fyrir sér í vörninni og endaði með flest brotin fríköst í liði Selfoss, 5 stykki.
Atvik leiksins?
Dómarapar leiksins átti ekki neitt sérstakan leik og það var allt of oft sem þeir virtust hreinlega ekki vita hvað þeir ætluðu að dæma. Sem dæmi, í seinni hálfleik þá kom upp atvik þar sem Ágúst Ingi Óskarsson leikmaður Vals ætlaði að fiska ruðning á Tryggva Sigurberg, leikmann Selfoss. Ágúst féll með látum og virtist þá eins og ytri dómari ætlaði að dæma ruðning þar sem hann hreinlega hljóp í burtu frá því sem var að gerast. Það heyrðist þó aldrei flaut og því voru menn virkilega ringlaðir um hvað væri í raun að gerast. Þetta endaði á því að innri dómari dæmdi brot á Ágúst við litla hrifningu Valsmanna sem og stuðningsfólk í húsinu.






