HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Snýr aftur heim

Snýr aftur heim

Mynd: Raggi Óla

Birkir Benediktsson er í viðræðum við Aftureldingu um að leika með liðinu á næsta tímabili samkvæmt heimildum Harpixins. Birkir er uppalinn í Mosfellsbæ og þekkir vel til hjá félaginu en hann lék með FH á síðasta tímabili og árið þar á undan í Japan. Samningur Birkis hjá FH rann út í sumar. 

Ljóst er að þetta yrði mikill liðsstyrkur fyrir Mosfellinga sem ætla að mæta með virkilega sterkt lið til leiks á næsta tímabili. Sömuleiðis hefur Harpix.is heyrt af því að Afturelding sé einnig í viðræðum við Árna Braga Eyjólfsson um að framlengja samninginn sinn við félagið.

Hrannar Guðmundsson og Ingimundur Ingimundarsson tóku við þjálfun Aftureldingar í sumar og má reikna með því að þeir fái hausverk við að stilla upp hægri vængnum sínum á næsta tímabili en það er enginn skortur á örvhentum leikmönnum hjá liðinu. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora