HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Hættur við að hætta?

Hættur við að hætta?

Mynd: mbl.is/Óttar

Samkvæmt heimildum Harpixins þá er Magnús Óli Magnússon í viðræðum við Valsmenn um að leika áfram með liðinu á næsta tímabili.

Þegar Valsmenn lyftu Íslandsmeistaratitlinum í vor, tilkynnti Magnús Óli í viðtölum eftir leik að hann væri að fara að leggja skónna á hilluna.

Ágúst Jóhannsson er greinilega ekki bara góður þjálfari heldur líka frábær sölumaður en það virðist vera að honum hafi tekist að sannfæra Magnús Óla um að taka eitt tímabil í viðbót með valsliðinu sem er á leiðinni í mikið leikjaálag en þeir munu taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Ef að satt reynist er ljóst að Magnús Óli muni styrkja Valsliðið mikið en Valur staðfesti í gær komu Ágústs Inga frá Aftureldingu. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora