HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Staðfesta félagaskiptin

Staðfesta félagaskiptin

Mynd: FH handbolti

FH hefur staðfest komu Eiðs Rafns Valssonar til félagsins en hann gerir þriggja ára samning við FH. Fimleikafélagið kaupir Eið Rafn frá Fram en talið er að kaupverðið hafi verið í kringum ein og hálf milljón.

Eiður er fæddur árið 2005 og hefur verið í öllum yngri landsliðum Íslands ásamt því að hafa orðið Íslands-og bikarmeistari með Fram árið 2025.
“Við bjóðum Eið Rafn velkominn í FH. Við erum sannfærð um að hann smellpassi inn í okkar umhverfi og væntum við mikils af honum. Eiður er metnaðarfullur leikmaður sem kemur með hraða, baráttuvilja og gæði inn í FH-liðið. Við hlökkum til að sjá hann blómstra í FH-treyjunni næstu árin” sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður handknattleiksdeildar FH við undirskriftina.
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora