Eins og Harpixið sagði frá þann 5. júlí þá hefur Jón Ómar Gíslason gengið til liðs við úrvalsdeildarfélagið Bregenz.
Jón Ómar kemur til Bregenz frá Haukum en samningi hans við Hauka var rift eftir tímabilið og honum frjálst að fara. " Jón Ómar hefur nákvæmlega þá eiginleika sem við erum að leita að fyrir okkar leikstíl. Hann passar mjög vel í þær áætlanir sem við höfum og okkur hlakkar mikið til að fá hann til liðsins" er haft eftir Julian Rausch þjálfara Bregenz í tilkynningunni.
Bregenz tilkynnti um komu Guðmundar Braga Ástþórssonar fyrr í sumar og verða því tveir íslendingar í herbúðum liðsins næsta vetur.
FRÉTT
Staðfesta komu Jóns Ómars

Mynd: mbl.is/Karítas





